Verkefnavinna með LEGO er gefandi og frábær leið til að hagnýta og auka þekkingu, byggja upp færni og stuðla að hæfni. Verkefnavinna með LEGO vekur áhuga og eflir þekkingu okkar í vísindum, forritun og tækni, verkfræði, eðlisfræði og stærðfræði.
„Það verður hverjum að list sem hann leikur,“ segir máltækið. Í því eru þau meginsannindi fólgin að hæfileikar mannsins þroskast ekki nema við notkun. Leikur, samskipti, sköpun og verkleg vinna í námi hjálpa okkur að nálgast námsefni, kalla fram áhuga og virkja okkur í þekkingarleit. Legókubbar bjóða upp á gagnlega og skemmtilega viðbót í kennslu. Þeir veita okkur kærkomið og einstakt tækifæri til að sinna sköpunar- og tækniþáttum á frumlegan og lærdómsríkan hátt með því að sameina hug og hönd, hugsun og framkvæmd. Vélræn högun og myndræn forritun, tölvustýring og sjálfvirkni, tækni og vísindi, verkfræði, eðlisfræði og stærðfræði, leikur og samskipti, sköpun og verkleg vinna. Þetta hljómar vel. Góða skemmtun!
|